Ferðaþjónusta er nú í dauðafæri til að ræsa sínar mikilvægu vélar að nýju þegar sér fyrir endan á heimsfaraldri og himnarnir opnast á ný. Verum ekki bara viðbúin því sem kemur heldur ákveðum hvert við viljum fara og á hvaða forsendum. Tækifæri til sóknar á forsendum áfangastaðanna sjálfra hefur aldrei verið eins mikið og aðkallandi. Sameiginlega tökumst við á við áskoranirnar framundan og saman munum við fagna komandi sigrum.
Ljóst er að fyrirtæki í virðiskeðju ferðaþjónustunnar hafa verið í miklum ólgusjó sem vonandi fer að sjá fyrir endann á. Á næstu vikum og mánuðum er lykilatriði að halda fast um taumana, nýta sér þau úrræði sem í boði eru af hendi stjórnvalda ásamt því að nýta tímann til að efla nýsköpun, vöruþróun og stafræna ferla fyrirtækisins.
Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og getu til að þróa vörur og þjónustu. Íslenski ferðaklasinn leiðir verkefnið í samstarfi við RATA og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ásamt stuðningi frá Ferðamálasamtökum höfuðborgarsvæðisins.
Ratsjáin mun snerta á helstu áskorunum sem fyrirtækjaeigendur standa frammi fyrir í dag en endanleg dagskrá mun vera unnin í samstarfi við þátttakendur sem geta með kosningu haft áhrif á þá efnisþætti sem teknir verða fyrir. Listi yfir mögulega efnisþætti er að finna inní umsóknarforminu hér.
Meðal efnisþátta sem verða í boði eru:
- Nýsköpun og vöruþróun
- Markaðsmál og markhópar
- Sjálfbærni og ábyrg ferðaþjónusta, stafræn þróun og tæknibylting fyrirtækja
- Breyttir tímar og tækifærin – kaupákvörðunarhringurinn
- Draumur stofnenda – tilgangur og markmiðasetning
- Heimasíður – hvernig skarar síðan mín fram úr?
- Jákvæð sálfræði
- Breytingastjórnun
- Vörumerkjastjórnun
- Endurhugsaðu viðskiptamódelið
- Skapandi hugsun sem verkfæri til framfara
- Samkeppnishæfni og sérstöðugreining, svo dæmi séu tekin.
Umsóknarfrestur er til 31. mars og verkefnið hefst með kynningafundi 13. apríl kl 15:00. Ratsjáin hefst svo formlega 20. apríl og lýkur 6. Október með hléi yfir sumarmánuði. Ratsjáin samanstendur af 7 lotum með heimafundum/jafningjaráðgjöf, fræðslu og erindum, verkefnavinnu og ráðgjöf.
Þátttökugjald í Ratsjána er 20.000 kr per fyrirtæki.