fbpx

Sögur í markaðssetningu (storytelling) Á trúnó með Auði Ösp 15. febrúar í Grósku.

Næsta stefnumót Ferðaklasans fer fram í Fenjamýri, Grósku, 15.febrúar kl 10:00

Langar þig að læra að nota sögur til að auka sölu og styrkja tengsl við viðskiptavini en veist ekki hvar þú átt að byrja?

Á þessari vinnustofu lærum við að finna sögurnar sem leynast nú þegar alls staðar í kringum okkur, vinna með þær og miðla þeim til viðskiptavina. Við skyggnumst aðeins inn í af hverju sögur virka í markaðsstarfi, sögur á mismunandi miðlum og fáum hagnýt ráð og tól til að vinna eigin sögur áfram.

Af hverju skipta sögur máli í ferðaþjónustu?

• Ferðaþjónusta er upplifunarvara þar sem upplifunin hefst um leið og hugmynd um ferðalagið kviknar.

• Sögur vekja upp tilfinningar hjá gestum og hjálpa þeim að tengjast vörumerkinu og áfangastaðnum • Sögur búa í höfði og hjörtum viðskiptavina löngu eftir að þeir eru farnir aftur heim.

• Sögur auka traust og trúverðugleika og hjálpa viðskiptavinum að taka ákvörðun um að eiga við þig viðskipti.

• Sögur breyta ferðalöngum í viðskiptavini og viðskiptavinum í dygga aðdáendur.

Stjórnandi vinnustofunnar er Auður Ösp Ólafsdóttir sem átti og rak ferðaþjónustufyrirtækið I Heart Reykjavík í áratug og byggði það upp með persónulegum sögum af landi og þjóð. Á þessari vinnustofu miðlar hún af reynslunni við að finna og skrifa sögur fyrir ferðamenn og hjálpar þér að skrifa næsta kafla í árangurssögu þíns fyrirtækis.


Þátttaka í öllum vinnustofum á vegum Feðaklasans er klasafélögum að kostnaðarlausu, aðrir greiða 4.900kr. 


Ferðaklasinn er óhagnaðardrifið félag sem fær tekjur sínar í gegnum aðildagjöld, þátttökugjöld í verkefnum og verkefnastýringu. Hlutverk Ferðaklasans er að efla samvinnu þvert á greinar og hraða mikilvægum breytingum í átt að auknum árangri fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu. Verkfæri klasans eru verkefni á breiðum grunni en Ferðaklasinn hefur sett áherslu á eftirfarandi flokka:
Sjálfbærni, nýsköpun og stafræna þróun. Þar að auki er sterk áhersla á alþjóðlegar tengingar