fbpx

Hvatningaverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2024

Bláa lónið hlaut í dag sérstaka viðurkenningu fyrir frábær störf í  þágu sjálfbærni, hringrásarhagkerfis og nærandi ferðaþjónustu.

Eliza Reid, forsetafrú Íslands veitti hvatningarverðlaunin í ár á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu sem fram fór við hátíðlega athöfn og húsfylli í Grósku. Viðburðurinn í ár var samstarfsverkefni Íslandsstofu og Íslenska ferðaklasans.

Nánar um hvatningaverðlaunin og ástæðu fyrir valinu:

Aðstandendur að verkefninu um Ábyrga ferðaþjónustu horfðu til þess við val á fyrirtæki ársins að fyrirtækið hefði um langan tíma lagt áherslu á hringrásarhagkerfið og hefði grunngildi sjálfbærni í starfsemi sinni að leiðarljósi.

Til viðbótar er mikilvægt að horfa til þess hvernig fyririrtækið hefur mótandi áhrif á nærumhverfi sitt, starfsmenn, náttúruna og öryggi gesta. Sérstök áhersla í ár er lögð á þátt nærandi ferðaþjónustu sem gengur út á að ganga enn lengra en að ná kolefna hlutleysi og er þróun í átt til þess að skila jákvæðum ábata til áfangastaðarins.

Fyrirtækið sem í ár hlýtur hvatningaverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu er Bláa Lónið.

Flest þekkja Bláa Lónið enda rótgróið fyrirtæki og eitt af okkar verðmætustu vörumerkjum þegar kemur að landkynningu og íslenskri ferðaþjónustu. Færri þekkja þó eða tengja Bláa lónið við hringrásarhagkerfið og hvernig það hefur unnið með auðlindastrauma síðustu 30 árin.

Sjálfbærni er kjarni og uppspretta Bláa Lónsins. Bláa lónið nýtir jarðsjó, gufu og koltvísýring sem fellur til við framleiðslu á grænni orku frá nærliggjandi jarðvarmaveri til að skapa aukin verðmæti. Fyrirtækið hefur að leiðarljósi að fullnýta auðlindastrauma úr iðrum jarðar í upplifun gesta þess sem og í framleiðslu á vörum. Allur rekstur Bláa Lónsins er samofinn fjölnýtingu dýrmætra auðlindastrauma sem er einstakt á heimsvísu. Yfir 30 ár hefur félagið rannsakað jarðsjóinn og eiginleika hans og skapað einstaka upplifun í sátt við umhverfi, samfélag og móður náttúru.

Með leiðarstefinu „Wellbeing for People and Planet“ hefur Bláa Lónið alla tíð lagt áherslu á sjálfbærni í rekstri og þessar áherslur skila sér í mælanlegum árangri. Fyrir utan fjölda vottana sem Bláa Lónið hefur hlotið, hefur kolefnislosun á hvern gest dregist saman um 38% á síðustu tveimur árum og notkun jarðefnaeldsneytis dregist saman um 30% frá árinu 2019. Plastspor í upplifun gesta hefur minnkað um 81% og endurvinnsluhlutfall jókst um 20% frá fyrra ári.

Bláa lónið fór á dögunum í gegnum B Corp vottunarferlið fyrst ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi og fékk vottunina staðfesta í kjölfarið. Markmið B Corp er að breyta viðskiptaháttum á heimsvísu og byggist tilgangur vottunarinnar á því að öll fyrirtæki ættu að mæla og meta þau áhrif sem þau hafa á t.d umhverfi, einstaklinga og samfélög til jafns við fjárhagslegan gróða. Til viðbótar við þessa nýju alþjóðlegu sjálfbærnivottun er Bláa lónið einnig vottað af þremur ISO stöðlum auk þess að hafa innleitt heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna.

Við óskum Bláa lóninu innilega til hamingju með þann mikla árangur sem það hefur náð í sjáfbærni vegferðinni og þá hvatningu sem fyrirtækið jafnframt smitar til annarra fyrirtækja í ferðaþjónustunni.

Saman erum við sterkari.

Viðburðurinn var í ár samstarfsverkefni Íslandsstofu og Íslenska ferðaklasans en að verkefninu kemur allt stoðkerfi íslenskrar ferðaþjónsutu sem til viðbótar eru Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofur landshlutanna og Ferðamálastofa. Þetta eru þeir sömu aðilar og standa að Ferðaþjónustuviknni sem nú stendur sem hæðst.