fbpx

Ferðalausnir – Komdu þér á kortið!

Nú er búið að frumsýna nýtt myndband í fræðsluþáttaröð Ferðamálastofu og Ferðaklasans um tækni í ferðaþjónustu.

Kort gegna lykilhlutverki í öllu daglegu lífi okkar og erfitt að hugsa sér ferðaþjónustu án þeirra. Í nýjasta þætti af Ferðalausnir – stafræn tækifæri fer Halldór Arinbjarnarson, upplýsingastjóri Ferðamálastofu, yfir hvernig fyrirtæki skrá sig á Google Maps og hvernig hægt er að nota þá skráningu sem lið í markaðsstarfi.

Til að komast á kortið er notuð ókeypis þjónusta sem kallast Google My Business. Í myndbandinu fer Halldór í nokkrum einföldum skrefum yfir hvernig fyrirtæki eru skráð á Google Maps og skráningin síðan virkjuð.

Hægt er að horfa á nýjasta þáttinn hér.