fbpx

Hús ferðaklasans opnar dyr – Sjón er sögu ríkari

Það var margt um manninn þann 1.febrúar þegar Hús ferðaklasans opnaði dyrnar fyrir nýjum og spennandi tækifærum.

Húsnæðið býður uppá skapandi vinnuumhverfi fyrir frumkvöðla og lítil og meðalstór fyrirtæki sem starfa við þróun og uppbyggingu í ferðaþjónustu, menningu og listum.

Hús ferðaklasans er staðfestt á Fiskislóð 10, mitt í hringiðju vinsælla veitingastaða, afþreyingar fyrir ferðamenn, fjölda listagallería og ýmisskonar þjónustufyrirtækja.

Hús ferðaklsans er vettvangur fyrir öflug fyrirtæki þar sem suðupottur nýrra hugmynda ásamt þátttöku aðila í ólíkum verkefnum verður til. Með því að opna þessar nýju dyr er komin forsenda fyrir aukinni samkeppnishæfni og verðmætasköpun til lengri tíma.  Þetta hefur Íslenski sjávarklasinn sýnt frammá með ótal dæmum um farsæl verkefni innan veggja húsnæðisins þar sem ólíkir aðilar hafa unnið saman að nýsköpunarverkefnum og frumkvöðlar fengið tækifæri á að vaxa og dafna í sterku tengslaneti.

Aðilar sem nýta aðstöðuna í húsinu hafa möguleika á að draga úr ýmsum kostnaði sem verður sameiginlegur í þessu umhverfi eins og t.d internet, prentun, te og kaffi, eldhúsaðstaða, þrif og fundarrými svo eitthvað sé nefnt.

Að verkefninu standa þrír klasar en það eru Íslenski sjávarklasinn, Íslenski ferðaklasinn og nýstofnaður Íslenski menningar og listaklasi sem unnið er að með franska menningar og viðskiptahraðlinum  Créatis.

Íslenski  ferðaklasinn var stofnaður formlega árið 2015 og innan félagsins eru öflug fyrirtæki sem sjá mikil tækifæri í aukinni samvinnu í greininni, aukinni þekkingaryfirfærslu  milli atvinnugreina og stuðnings við frumkvöðla. Í samstarfi við Icelandic Startups hefur Íslenski ferðaklasinn komið að þremur viðskiptahröðlum þar sem 10 teymi vinna saman í 10 vikur í þróun og uppbyggingu á vörum og þjónustu. Viðskiptahraðallinn Startup Tourism fer fram í nýju húsnæði Ferðaklasans að þessu sinni.

Allar nánari upplýsingar um húsnæðið og möguleg rými má fá með því að hafa samband við framkvæmdastjóra Íslenska ferðaklasans: asta.kristin@icelandtourism.is, s: 861-7595

Ef þú ert aðili sem langar að komast í öflugt samfélag þar sem sköpun, drifkraftur og sterkt tengslanet fer saman þá hvetjum við þig til þess að fylla út þetta einfalda form og vera í sambandi við okkur.

Umsókn um leigu á Fiskislóð 10 – Hús ferðaklasans

Hér má sjá nokkrar svipmyndir frá opnunarteitinu 1.febrúar en fleiri myndir má sjá inná facebook síðu Íslenska ferðaklasans.