fbpx

Svörtuloft sigraði hugmyndasamkeppni

Þann 13.júní fóru fram úrslit og kynning á tillögum sem bárust í Hugmyndasamkeppni EIMS um nýtingu lághitavatns á Norðurlandi eystra, haldin í samstarfi við Íslensk verðbréf og Vaðlaheiðargöng hf. Alls bárust 14 mjög ólíkar og metnaðarfullar tillögur í samkeppnina, sem sýndu vel fram á fjölbreytta nýtingarmöguleika á svæðinu.

Dómnefnd hafði áður valið fjórar bestu tillögurnar og fór fram kynning á þeim í Menningarhúsinu Hofi þann 13.júní. Í kjölfarið valdi dómnefnd bestu tillöguna, auk þess sem veitt voru verðlaun fyrir annað sæti, en fyrsta sætið hlaut 1.500.000 kr í verðlaun og annað sæti 500.000 kr. Dómnefnd skipuðu Arnheiður Jóhannsdóttir, Markaðsstofu Norðurlands, Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, Ágúst Torfi Hauksson, stjórn Vaðlaheiðarganga hf., Sigríður Ingvarsdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, og Jón Steindór Árnason, Íslenskum verðbréfum.

Í fyrsta sæti varð tillagan Svörtu loft frá Stefáni Tryggva- og Sigríðarsyni. Vinningshugmyndin tengist vatninu í Vaðlaheiðargöngum og gengur út á að nýta umhverfið í nánd við göngin til hellagerðar og einstakrar baðupplifunar. Í tillögunni sem send var inn um svörtu loft kom vel fram hvernig frumkvöðlarnir sjá heildaruppbygginguna fyrir sér og hvernig hún fellur að landslaginu, og tengist uppbyggingu gangna með jákvæðum hætti. Dómnefndin vonar sannarlega að innan skamms tíma getum við fengið að njóta heita vatnsins úr Vaðlaheiðargöngum í einstöku umhverfi með útsýni yfir Eyjafjörðinn og Akureyri.

Tillagan sem dómnefndin valdi í annað sæti var mjög nýstárleg hugmynd fyrir svæðið, og jafnvel Ísland í heild. Hugmyndin gengur út á að nýta lághitann í Öxarfirði til framleiðslu á þungu vatni, vetni og súrefni, sem hægt er að nýta í margskonar framleiðslu. Ljóst er að þegar er búið að verja miklum tíma og talsverðum fjármunum í að móta hugmyndina. Vonandi verður þetta hvatning til að taka hugmyndina á næsta stig og athuga enn frekar með fýsileika hennar og hún verði að veruleika í Öxarfirði þar sem er bæði mikið af heitu og köldu vatni eins og til þarf. Tillagan kom frá Hafsteini Hafsteinssyni/EFLU verkfræðistofu.

Þó þessar tvær tillögur hafi unnið samkeppnina þá er rétt að koma því á framfæri að allt voru þetta góðar hugmyndir sem raungerast vonandi sem flestar, en til þess var samkeppnin hugsuð – að auka verðmætasköpun á svæðinu og vekja athygli á þeim tækifærum sem liggja í nýtingu lághitavatns á Norðurlandi eystra.

Skoða má tillögurnar sem bárust hér:

Hugmyndasamkeppni um nýtingu lághita á Norðurlandi eystra