fbpx

Frumkvöðlar í ferðaþjónustu – Hvar á að byrja? – Námskeið

Ertu með hugmynd að nýrri tæknilausn eða afþreyingu í ferðaþjónustu og vilt taka fyrstu skrefin við að gera hana að veruleika? Námskeiðið Frumkvöðlar í ferðaþjónustu – hvar á að byrja er sérsniðið að þeim sem vilja þróa viðskiptatækifæri og stofna fyrirtæki í ferðaþjónustu. Farið verður yfir fyrstu skrefin í mótun og þróun nýrra hugmynda ásamt áætlanagerð, fjármögnun og kynningum. Námskeiðið er í tveimur hlutum og taka þátttakendur virkan þátt í gegnum umræður og stutt verkefni meðan á námskeiðinu stendur ásamt því að vinna heimaverkefni fyrir seinni hluta námskeiðsins.

Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á nýsköpun í ferðaþjónustu, eru á fyrstu skrefunum með viðskiptahugmynd eða vilja skerpa á nýstofnaðri starfsemi. Í boði eru 30 sæti á námskeiðið og fyrstu kemur fyrstur fær sér að kostnaðarlausu. Skráning hér (https://forms.gle/aBiXeSDBXWLvDPRs6)

Námskeið fyrir frumkvöðla með hugmynd á fyrstu stigum í ferðaþjónustu í tveimur hlutum:

Kl 9:00-12:00

11. febrúar – Nýsköpunarakademían í Keili

18. febrúar – Gróska í Reykjavík

Einnig verður í boði að taka þátt í gegnum Zoom.

Námskeiðinu stýrir Svava Björk Ólafsdóttir stofnandi RATA og Hacking Hekla en hún hefur yfir 8 ára reynslu úr stuðningsumhverfi frumkvöðla m.a í kennslu í nýsköpun og frumkvöðlafræðum á háskólastigi, þróun og framkvæmd vinnustofa, hraðla (t.d. Startup Tourism & Vaxtarrými), lausnamóta og annarra verkefna innan nýsköpunarsamfélagsins hér á landi.

Námskeiðið er haldið á vegum Nýsköpunarakademíu ferðaþjónustunnar í samstarfi við Hekluna atvinnuþróunarfélag Suðurnesja og frumkvöðlasetrið Eldey.

Stofnaðilar Nýsköpunarakademíu ferðaþjónustunnar eru Keilir, Markaðsstofa Reykjaness og Íslenski ferðaklasinn.