fbpx

Hvað þarf til? Ábyrg ferðaþjónusta 2020

Fyrsti viðburður ársins í Ábyrgri ferðaþjónustu fer fram þann 12.febrúar næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík.

Húsið opnar kl 8:00 með morgunmat og rjúkandi kaffibolla.

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar og viðskiptamaður ársins mun deila sinni reynslu sem stjórnandi á umbrotatímum. Hvernig að hennar mati er gott að hvetja starfsfólk og teymi í átt til aukinnar sjálfbærni? Hvernig spilar aukin umhverfisáhersla við samkeppnishæfni fyrirtækja? Hver er sérstaðan?
Gréta mun deila með stjórnendum í ferðaþjónustu góðum dæmum, áskorunum og þróuninni sem er hvergi nærri lokið.

Fyrir hverja?: Þátttakendur í verkefninu um Ábyrga ferðaþjónustu og aðra áhugasama.
Hvað kostar?: Frítt fyrir þátttakendur sem hafa greitt þátttökugjald vegna 2020, aðrir greiða 3.900kr (Hægt að nálgast miða hér)
Hvað er í boði? Innblásið erindi sem gott er að spegla sig í, morgunmatur og kaffi frá 8:00.

Ath að þeir aðilar sem hafa greitt þátttökugjald í Ábyrga ferðaþjónustu fá sendan sérstakan skráningalink. Hafir þú ekki fengið þessar upplýsingar sendar hafðu þá samband við arni@icelandtourism.is