Þann 11. september næstkomandi á milli kl. 10-12 munum við beina sjónum að loftlagsmálum á vettvangi Ábyrgrar ferðaþjónustu.
Viðburðurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík einu glæsilegasta ráðstefnu hóteli landsins. Grand Hótel Reykjavík er hluti af Íslandshótelum sem samanstandur af 17 glæsilegum hótelum hringinn í kringum landið en Íslandshótel hafa verið dyggur bakhjarl að verkefninu um Ábyrga ferðaþjónustu.
Dagskrá:
Ávarp
Halldór Þorgeirsson, formaður loftslagsráðs
Ábyrg ferðaþjónusta – Hvert skal haldið?
Ketill Berg Magnússon, fyrrverandi framkvæmdastjóri Festu
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Ferðaklasans
Tækifæri ábyrgrar ferðaþjónustu – Rýnt í verkfærakistuna
Sandra Rán Ásgrímsdóttir, sjálfbærniverkfræðingur hjá Mannvit
Reynslusögur fyrirtækja
Elín Sigurðardóttir, sölustjóri hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum
Helena W Óladóttir, gæða- og umhverfisstjóri hjá Farfuglum
Ávarp frá ferðamálaráðherra
Pallborð með þátttöku Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferðamálaráðherra og framsögumanna
Stjórnandi pallborðs: Harpa Júlíusdóttir, verkefnastjóri hjá Festu.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF mun sjá um fundarstjórn og samantekt í lok fundar.
Viðburðurinn verður uppfullur af praktískum upplýsingum um gagnleg tól og tæki til fyrirtækja og stefnu stjórnvalda til lengri tíma þegar kemur að sjálfbærni og umhverfismálum.
Skráning á viðburðinn er mikilvæg, hún fer fram hér: https://forms.gle/HfWjnVypQmd1N4nc9