fbpx

Ferðalausnir – stafræn tækifæri

Ferðamálastofa í samstarfi við Íslenska ferðaklasann mun á næstu mánuðum standa fyrir hagnýtum vef-vinnustofum. Markmiðið er að sýna, kynna og miðla þekkingu og reynslu til fyrirtækja í ferðaþjónustu á sviði aukinnar tækni og öflugri miðlunar.

Áskoranir ferðaþjónustufyrirtækja

Fyrirtæki í ferðaþjónustu standa frammi fyrir að velja milli fjölda nýrra tæknilausna, fjölbreyttra tóla og nýrra aðferða til að ná til viðskiptavina sinna og gesta. Nú sem aldrei fyrr eru tækifæri í að efla tækni á öllum stigum sem geta leitt til aukinnar framleiðni og bættrar afkomu ferðaþjónustufyrirtækja.

Þekkingu miðlað með rafrænum hætti

Markmið Ferðamálastofu og Íslenska ferðaklasans með framtakinu er fyrst og fremst að koma á framfæri hvernig mismunandi aðferðir hafa nýst aðilum og leita leiða til að miðla þeirri reynslu á eins milliliðalausan hátt og mögulegt er. Allir geta nálgast efnið á þeim tíma sem hentar best, óháð staðsetningu.

Nýtt efni hálfsmánaðarlega

Fyrstu vef-vinnustofurnar eru fyrirlestrar sem munu snúa að leiðum til að minnka milliliði í sölu, hvernig megi hámarka notkun samfélagsmiðla og hvernig Mælaborð ferðaþjónustunnar nýtist við markaðs og sölustarf. Vef-vinnustofurnar verða aðgengilegar á vef Ferðamálastofu og mun nýtt efni vera frumsýnt á tveggja vikna fresti, fyrst þann 23. október kl. 11:00.

Ferðamálastofa og Íslenski ferðaklasinn vonast til að efnið sem framleitt verður nýtist sem flestum og taka á móti öllum ábendingum sem aðilar kunna að hafa eða tillögum að efni sem fyrirtæki óska sérstaklega eftir að rýnt verði.