fbpx

26.september – Vöxtur í leit að jafnvægi

TÍMI: 26. sept 2017 kl. 8:00
STAÐUR: Silfurberg / Harpa
VERÐ: Opið öllum án endurgjalds – skráning nauðsynleg

Frá ársbyrjun 2011 hafa um sjö milljónir ferðamanna heimsótt Ísland og uppsafnaðar gjaldeyristekjur ferðaþjónustunnar nema ríflega 2.000 milljörðum króna. Efnahagslegt mikilvægi ferðaþjónustunnar er óumdeilt. En hvert stefnir greinin og hvað er framundan? Þessar spurningar, ásamt nýrri greiningu Hagfræðideildar Landsbankans, eru viðfangsefni ferðaþjónusturáðstefnu Landsbankans sem haldin verður í Hörpu 26. september kl. 8.30-11.00.

Dagskrá:

Þróun og tækifæri ferðaþjónustunnar á Asíumarkaði:
Ársæll Harðarson Forstöðumaður hjá Icelandair og formaður Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins

Framtíð ferðaþjónustu á Íslandi: Að finna vextinum farveg
Anita Mendiratta Sérfræðingur í ferðaþjónustu og ráðgjafi aðalritara Ferðamálastofnunar SÞ

Vatnaskil eða vaxtarverkir?
Dr. Daníel Svavarsson Forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans

Ferðaþjónustan er komin til að vera
Gústaf Steingrímsson Hagfræðingur hjá Landsbankanum

Pallborðsumræður:
Björgólfur Jóhannsson
-Forstjóri Icelandair Group
Elín Árnadóttir
-Aðstoðarforstjóri Isavia
Skúli Mogensen
-Stofnandi og forstjóri WOW air

Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, viðskiptastjóri hjá Landsbankanum, sér um fundarstjórn.
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans, stýrir umræðum.
Skráning á https://www.landsbankinn.is/skraning/voxtur-i-leit-ad-jafnvaegi/  #ferðaþjónusta