fbpx

Áhrif ferðaþjónustu í nærsamfélagi

Áhrif ferðaþjónustu á nærsamfélagið:

Beinar opinberar tekjur af þjónustu við ferðamenn  45 milljarðar
Opinberar beinar tekjur, bæði ríkis og sveitarfélaga voru 45 milljarðar árið 2015. Beinar tekjur ríkissjóðs eingöngu vegna ferðamanna eru áætlaðir 32 milljarðar en kostnaður einungis 4 milljarðar. Tekjur sveitarfélaga  voru 13 milljarðar. Þessar upplýsingar verða meðal efnis sem kynnt verður á málþingi sem  Íslenski ferðaklasinn og Festa standa fyrir í Hofi föstudaginn 8. september næstkomandi. Á málþinginu mun skýrsla sem Deloitte gerði fyrir Stjórnstöð ferðamála í sumar verða ítarlega kynnt. Skýrslan er greining á beinum opinberum tekjum og gjöldum vegna ferðamanna árið 2015.

 

Mikil umræða er á Íslandi um hvaða áhrif aukinn fjöldi ferðamanna hefur á efnahag, mannlíf og menningu í landinu. Ríki og sveitafélög fá auknar tekjur og íbúar í stórum og smáum byggðum njóta aukinnar ferðaþjónustu, en um leið finna þeir fyrir auknum ágangi og álagi sem ferðamannastraumurinn hefur á innviðina

 

Ferðaþjónusta breytir mannlífi og samfélögum
Yfirskrift málþingsins er áhrif ferðaþjónustu á nærsamfélagið. Málþingið er ætlað þeim sem hafa með þróun og uppbyggingu ferðaþjónustu að gera, sem eru fyrirtæki, íbúar, menntastofnanir og opinberir aðilar. Ljóst er að ferðamenn hafa víðtækari áhrif á hagkerfið, ýmis afleidd áhrif eru hagræn áhrif sem verða til vegna ferðamanna. Störf í ferðaþjónustu skapa aukin kaupmátt, sem aftur hvetur áfram neyslu og býr til launatekjur sem annars hefðu ekki verið til staðar. Ferðaþjónustan gerir einnig að verkum að líffskilyrði íbúanna verða betri, þeir geta valið um frekari afþreyingu og veitinghúsaflóran blómstrar og skólar haldast opnir. Afleidd áhrif hafa þannig margföldunaráhrif á fjölgun starfa heima í héraði og þannig geta brottfluttir flutt aftur heim og skapað sér lífsskilyrði nærri fjölskyldunni. Þessi áhrif verða seint metin til fjár.

 

Á málþinginu verða fróðleg erindi sem einmitt taka á þessum málum:   Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, hjá Rannsóknarmiðstöð ferðamála, mun fjalla um áhrif ferðamanna frá sjónarhóli íbúa, Róbert K. Guðfinnsson, athafnamaður, frumkvöðull og fjárfestir  mun fjalla um áhrif ferðaþjónustu í nærsamfélagi.
Markaðsstofa Norðurlands er samstarfsaðili að málstofunni. Einnig flytja Unnur Valborg Hilmarsdóttir, formaður Ferðamálaráðs Íslands og Markaðsstofu Norðurlands og Matthías Rögnvaldsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar erindi. Fundarstjóri verður Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.
Málþingið stendur frá kl. 14.00 – 16.00 í Hofi á Akureyri.

 

Umfjöllun um málþingið og skýrslu Deloitte:

Mbl.is

Viðskiptablaðið