- This event has passed.
Ferðaþjónusta nýrra tíma – Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar 2022
janúar 11, 2022@ 9:00 f.h. - 11:00 e.h.
Á Nýársmálstofu ferðaþjónustunnar verður horft inn í nýtt ár og við munum velta upp helstu tækifærum og áskorunum framundan.
Í ár líkt og fyrri ár er nýársfundurinn haldin í samstarfi Íslenska ferðaklasans, Samtaka ferðaþjónustunnar og KPMG.
Dagskrá fundarins mun að venju tengjast niðurstöðum úr viðhorfskönnun sem send er aðilum í greininni en jafnframt fáum við til okkar helstu sérfræðinga á sviði sjálfbærnivíddanna þriggja, efnahags, samfélags og umhverfis. Við veltum upp möguleikum til sóknar ásamt því að veita aðilum innblástur í að efla og auka þekkingu og gæði þegar kemur að rekstri ferðaþjónustufyrirtækja í nýju landslagi.