fbpx

TOURBIT – frestur til 19.apríl

Er þitt fyrirtæk í stafrænni vegferð og þarf fjármagn í næstu skref?

Þá viljum við hvetja þig til að lesa í gegnum eftirfarandi punkta og skoða hvort þetta er tækifæri fyrir þig.

Íslenski ferðaklasinn er hluti af Evrópuverkefninu TOURBIT sem hefur það hlutverk að hraða ferðaþjónustufyrirtækjum í gegnum hið stafræna ferðalag. 

Hægt verður að styðja við sjö fyrirtæki á Íslandi að andvirði 9.000 € hvert.

Þessi hluti verkefnisins er unnin með stuðningi Ferðamálastofu og landshlutasamtakanna með samstarfi við áfanastaðastofur/markaðsstofur landshlutanna víða um land.

Hverjir geta sótt um?

Þau fyrirtæki sem geta sótt um stuðning á sinni stafrænu vegferð eru fyrirtæki í þessum flokkum:

  • Hótel og gististaðir – Hotels and similar accommodation (NACE I5510)
  • Gistiheimli og smáhýsi – Holiday and other short-stay accommodation (NACE I5520)
  • Tjaldsvæði – Camping grounds, recreational vehicle parks and trailer parks (NACE I5530)
  • Ferðaskrifstofur, ferðasalar dagsferða og tengdur rekstur – Travel agency, tour operator reservation service and related activities (NACE N79)

Hér eru skrefin fjögur sem þarf að fara í gegnum

Hvað má nota stuðninginn í?   

  • Ráðagjafakostnað og sérfræðikostnað
  • Auka hæfni og þekkingu innan fyrirtækis með aðkeyptri þjónustu (námskeið, menntun, osfrv)
  • Innleiðingaferli á nýrri tækni
  • Eingöngu er hægt að nota stuðninginn hjá fyrirfram ákveðnum þjónustuaðilum, listi yfir þjónustuaðala verður aðgengilegur hér. www.tourbit.eu – ef þú ert þjónustuaðili getur þú skráð þig hér.

Mikilvægt er að kynna sér málið vel hér, hala niður umsókninni hér og senda inn umsókn fyrir 19.apríl!