fbpx

Iceland Travel Tech 2023 – 25.maí í Grósku!

Iceland Travel Tech sem er samstarfsverkefni Ferðaklasans og Ferðamálastofu fer nú fram í fimmta skipti í Grósku – Vatnsmýri. Viðburðurinn er haldin sem hluti af Nýsköpuarvikunni þann 25.maí og hefst kl 13:00. Í ár verður áhersla á að fá sýnendur aftur í hús þannig að ferðaþjónustuaðilar og ferðatæknifyrirtæki geti hisst í raunheimum.

Búið er að opna fyrir skráningar

Viðburðurinn í ár fer fram þann 25.maí frá 13:00-17:00 en heimili Iceland Travel Tech verður Gróska, nýsköpunar og hugmyndahús í Vatnsmýrinni.  Viðburðurinn er einnig hluti af Nýsköpunarvikunni sem fram fer víða um borg og bý frá 22 – 26.maí.  Upptaka af viðburðinum verður aðgengileg síðar.

Í ár er viðburðurinnm tvískiptur – Fyrsti hluti er innblásin af erindum frá tækni og ferðaþjónustuaðilum en í seinni hálfleik mun þátttakendum gefast kostur á að hitta og sjá marga af leiðandi tækniaðilum í ferðaþjónustu á Íslandi á sýningu sem fram fer á fyrstu hæð Grósku.

Iceland Travel Tech 2023 býður ykkur erindi sem koma okkur nær því að leysa áskoranir og finna tækifærin þegar kemur að þessum þremur megin þemum:

1. STARFSMAÐURINN (ferlar og tækni til að auðvelda starfsmönnum og stjórnendum lífið)

2. UPPLIFUN GESTA( sjálfvirknivæðing, snertilausar lausnir, hámörkun á upplifun með tækni)

3. MARKAÐURINN ( leitavélabestun, lykil mælikvarðar, notkun ChatGPT, bigData)

Við höfum fengið til liðs við okkur frábæra fyrirlesara úr öllum áttum og hlökkum til að kynna þá fyrir ykkur hvern á fætur öðrum.

Frábær dagskrá sem er öllum að kostnaðarlausu en skráning er nauðsynleg.

Þáttakendur 2023

Bakhjarlar

Godo

Godo

Tripcreator

Gull

Sweeply
Keeps

Silfur

Brons

Frumkvöðlar