fbpx

Hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2020

Á degi Ábyrgrar ferðaþjónustu þann 7.janúar veitti forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu. Verðlaunin að þessu sinni féllu í skaut Friðheima í Reykholti.

Í rökstuðningi dómnefndar sagði meðal annars:

“Friðheimar eru fjölskyldufyrirtæki sem hefur vaxið og dafnað í gegnum árin með það markmið að

ganga vel um og virða náttúruna. Umhverfismál eru eigendum hugleikin, þau hafa verið í

hvatningaverkefninu Ábyrg ferðaþjónusta frá upphafi. Þá er fyrirtækið með bronsvottun Vakans og

stefna þau ótrauð á gullið.

Fyrirtækið leggur mikla áherslu á réttindi starfsfólk. Nýliðaþjálfun og fræðsla er til fyrirmyndar enda

er starfsfólk hjarta fyrirtækisins eins og þau segja sjálf. Á ný liðnu ári var lögð áhersla á að halda öllu

starfsfólki og byggja upp sterka innviði fyrir bjartari tíma.

Á Friðheimum er lögð áhersla á stuðning við nærsamfélagið m.a. með því að versla í héraði auk þess

sem að allir gestir eru upplýstir um ylrækt á Íslandi og þá merku sögu sem svæðið hefur að geyma.

Fyrirtækið leggur áherslu á nýsköpun og tileinkar sér umhverfisvænar lausnir, má þar nefna aðferðir

til að minnka matarsóun og lágmarka kolefnisspor. Friðheimar eru lifandi dæmi um hvernig íslenskt

hugvit þar sem landsins gæði geta orðið til þess að skapa einstaka upplifun í ferðaþjónustu. Upplifun

sem tengir saman marga þætti og styður við þá hugsun að nýta landið á sjálfbæran hátt, fræða,

skapa, upplifa og vinna saman að því að bæta umhverfi og samfélag.”

 

 

Dómnefnd vill jafnframt koma því á framfæri að tilnefningar að þessu sinni voru mjög frambærilegar og vel rökstuddar. Það væri greinilegt að mörg fyrirtæki eru að standa sig frábærlega, svo eftir því er tekið. Af þeim sökum var val dómnefndar alls ekki einfalt. Það var þó einróma niðurstaða dómnefndarinnar, þegar allir þættir voru teknir saman, að Friðheimar séu vel að þessum hvatningarverðlaunum komin.

Uppbyggingin á Friðheimum getur verið okkur öllum innblástur um hvað hægt er að gera með íslenskt hugvit og íslenskt hráefni í höndunum og ábyrga ferðaþjónustu að leiðarljósi.

Við viljum óska Friðheimum innilega til hamingju með verðlaunin.

Verkefninu um Ábyrga ferðaþjónustu hefur verið haldið úti frá 10.janúar 2017 en hátt í 200 fyrirtæki um allt land taka virkan  þátt í verkefninu í gegnum fræðslufundi, vinnustofur og viðburði. Framkvæmdaaðilar eru Íslenski ferðaklasinn og Samtök ferðaþjónustunnar í samstarfi við FESTU, félag um samfélagsábyrgð.

Hér má sjá myndband frá viðburðinum.