fbpx

Stefnumótun fyrir ferðaþjónustuna – Reykjavík

Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Stefnumótun fyrir ferðaþjónustuna – Reykjavík

desember 17, 2019@ 1:00 e.h. - 4:00 e.h.

Áhugaverður viðburður á vegum Stjórnstöðvar Ferðamála.

Hafin er vinna við aðgerðabundna stefnumótun fyrir ferðaþjónustu á Íslandi til ársins 2025. Verkefnið er sameiginlegt verkefni Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytisins, Sambands Sveitarfélaga, Samtaka ferðaþjónustunnar og Stjórnstöðvar ferðamála.

Á undanförnum misserum hefur verið unnið að tveimur mikilvægum verkefnum sem stefnumótunin byggir á. Annars vegar er það Jafnvægisás ferðamála þar sem álag á innviði og samfélag hefur verið metið. Hins vegar hefur Framtíðarsýn og leiðarljós fyrir ferðaþjónustu til 2030 verið samþykkt af atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og þar kemur fram að ferðaþjónusta verði leiðandi í sjálfbærni.

Boðað er til opinnar vinnustofu í tengslum við stefnumótunina. Vinnustofan er opin öllum, og er mikilvægt að fá að borðinu alla hagsmunaaðila í ferðaþjónustunni grasrót, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Á vinnustofunni verða ræddar sviðsmyndir um þróun ferðaþjónustunnar til næstu ára og þær leiðir sem er mikilvægt að fara til að ná framtíðarsýn og leiðarljósi ferðaþjónustunnar um að vera leiðandi í sjálfbærni.

Vinnustofan er um þrjár klukkustundir. Unnið er í hópum að mismunandi meginmálefnum sem varða ávinning heimamanna, upplifun ferðamanna, verðmæta markaði, álagsstýringu og gæði áfangastaða, arðsemi og nýsköpum og loftslagsmál og orkuskipti.

Afurð vinnustofanna er mikilvægt veganesti inn í stefnumótunina. Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært að mæta og taka virkan þátt í umræðunum.

Verkefnið er sameiginlegt verkefni Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytisins, Sambands Sveitarfélaga, Samtaka ferðaþjónustunnar og Stjórnstöðvar ferðamála.

Skráning fer fram hér: https://forms.gle/E5XTbuZvscRY21uq9

Upplýsingar

Dagsetn:
desember 17, 2019
Tími
1:00 e.h. - 4:00 e.h.