- This event has passed.
Opinn kynningarfundur um Startup Tourism
október 23, 2018@ 12:00 e.h. - 1:00 e.h.
Ert þú með viðskiptahugmynd á sviði ferðaþjónustu?💡
Kynningarfundur Startup Tourism verður haldinn þriðjudaginn 23. október kl 12:00-13:00 í Íslenska Ferðaklasanum.
➖➖ DAGSKRÁ FUNDARINS ➖➖
👉 Hraðallinn kynntur og svör gefin við spurningum sem kunna að vakna
👉 Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir talar um sína reynslu af þátttöku í hraðlinum, en hún tók þátt í ár með fyrirtæki sitt Kaffi kú
👉 Mentor ársins 2018 krýndur
👉 Boðið upp á léttan hádegisverð
Startup Tourism er viðskiptahraðall sem sérsniðinn er að þörfum nýrra fyrirtækja á sviði ferðaþjónustu. Verkefninu er ætlað að veita viðskiptahugmyndum faglega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd kviknar þar til viðskipti taka að blómstra🌱
Opið er fyrir umsóknir í hraðalinn til 3. desember á www.startuptourism.is.
Hraðallinn hefst í janúar og fer fram í Reykjavík.
—–
Bakhjarlar Startup Tourism eru Isavia, Íslandsbanki, Bláa Lónið og Vodafone, en Icelandic Startups og Íslenski Ferðaklasinn sjá um framkvæmd verkefnisins.
Viðburðinum verður streymt á Facebook síðu Startup Tourism.