- This event has passed.
Sjálfbærni skapar meira virði
nóvember 16, 2018@ 11:30 f.h. - 1:30 e.h.
Föstudaginn 16. nóvember stendur Ferðaklasinn í samstarfi við Festu fyrir viðburðinum Sjálfbærni skapar meira virði. Viðburðurinn er hluti af verkefni um Ábyrga ferðaþjónustu.
Hvaða viðskiptalegu tækifæri felast í meiri sérhæfingu í vöruþróun? Hvernig komum við skilaboðum á framfæri til viðskiptavina um að við séum ábyrg, vinnum á sjálfbæran hátt og hugum að náttúrunni? Getum við gert meira en bara það sem er nauðsynlegt í dag?
Getur sjálfbærni veitt okkur aukið viðskiptalegt virði og verðmætari viðskiptavini?
Svör við þessum spurningum og fleirum verður að finna í þremur spennandi erindum á hádegisviðburði sem Festa, félag um samfélagsábyrgð fyrirtækja og Ferðaklasinn bjóða til þann 16. nóvember næstkomandi.
Dagskrá
Þróun á vöru – Björg Árnadóttir, framkvæmdastjóri Midgard Adventure
Bestun á virðiskeðju – Sandra Rán Ásgrímsdóttir, sjálfbærniverkfræðingur hjá Mannvit
Markaðssókn og breyttar áherslur – Daði Guðjónsson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu
Fundastjóri Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans
Tími: 11:30 – 13:00
Staður: Hús ferðaklasans, Fiskislóð 10, 2.hæð.