fbpx

Haustfundur ferðaþjónustunnar

Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Haustfundur ferðaþjónustunnar

nóvember 14, 2019@ 10:00 f.h. - 3:30 e.h.

Haustfundur ferðaþjónustunnar verður haldinn í Sláturhúsinu fimmtudaginn 14. nóvember næstkomandi. Í hádeginu munu brugghús og veitingastaðir á svæðinu kynna vörur sínar og bjóða þátttakendum að smakka.

Allir velkomnir! Skráning fer fram á Facebook-viðburðinum hér.

Dagskrá:
– Jónína Brynjólfsdóttir og María Hjálmarsdóttir kynna þau verkefni sem Austurbrú vinnur að auk uppfærslu á „Áfangastaðaáætlun“.

– Lilja Rögnvaldsdóttir kynnir ferðavenjukönnun sem fór fram á Egilsstöðum sumarið 2018 en markmið verkefnisins var að safna upplýsingum um ferðahegðun og útgjaldamynstur ferðamanna á einstökum svæðum yfir sumartímann.

– Eyrún Jenný Bjarnadóttir kynnir niðurstöður könnunar um viðhorf heimamanna til ferðaþjónustu en könnunin var gerð sumarið 2018.

– Ásta Kristín Sigurjónsdóttir kynnir verkefnið „Ábyrg ferðaþjónusta“ og ávinning fyrirtækja af þátttöku í verkefninu.

– Inga Rós Antoníusdóttir verður með kynningu á verkefninu „Stafræn þróun“ sem Ferðamálastofa hefur sett á laggirnar en stafræn væðing ferðaþjónustu er eitt af áherslumálum þeirra.

– Inga Hlín Pálsdóttir fer yfir stefnuáherslur í markaðssetningu fyrir ferðaþjónustuna en ný stefna Íslandsstofu var kynnt þann 23. október síðastliðinn.

Vinnustofa: Daniel Byström og María Hjálmarsdóttir stýra vinnustofu eftir hádegi þar sem unnið verður með nýsköpun og vöruþróun í tengslum við áherslur áfangastaðarins.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Upplýsingar

Dagsetn:
nóvember 14, 2019
Tími
10:00 f.h. - 3:30 e.h.