- This event has passed.
Afkoma fyrirtækja í ferðaþjónustu 2018 með samanburði við fyrri ár
nóvember 22, 2019@ 8:30 f.h. - 10:00 f.h.
Á síðasta ári fól Ferðamálastofa KPMG að gera úttekt á rekstri fyrirtækja í ferðaþjónustu. Niðurstöður þóttu áhugaverðar og í kjölfarið skapaðist mikil umræða um stöðu greinarinnar. Vegna óvissu sem var í rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar í byrjun árs 2019, m.a. vegna deilna á vinnumarkaði og falls WOW, var talin ástæða til að endurtaka könnunina og fá fram upplýsingar um rekstur ársins 2018.
Í mars 2019 sendi KPMG fyrirtækjum í ferðaþjónustu beiðni um að veita tiltekna rekstrarupplýsingar. Beiðnin var send í tölvupósti á 1128 póstföng, bæði til stórra og smárra fyrirtækja. Skýrsla um afkomu hótelfyrirtækja var birt í júlí 2019. Svör frá bílaleigum, hópbílafyrirtækjum, afþreyingarfyrirtækjum og ferðaskrifstofum nægðu hins vegar ekki til að unnt væri að byggja á þeim áreiðanlegar niðurstöður. Var því ákveðið að fresta úrvinnslu og afla frekari upplýsinga úr ársreikningum hjá ársreikningaskrá.
Þessi úrvinnsla hefur nú farið fram og byggja eftirfarandi niðurstöður á upplýsingum sem bárust í umræddri könnun auk upplýsinga úr ársreikningum valinna fyrirtækja. Fyrst og fremst voru veltumikil fyrirtæki valin í þessu úrtaki.
Tími: Morgunverðarkynning kl. 8.30-10
Staðsetning: KPMG, Borgartúni 27, Reykjavík
Útsending: Streymt beint og upptaka gerð aðgengileg á netinu.