- This event has passed.
Afhending nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar 2019
nóvember 11, 2019@ 4:30 e.h. - 7:00 e.h.
Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar verða afhent við hátíðlega athöfn á afmælisdegi Samtaka ferðaþjónustunnar, mánudaginn 11. nóvember.
Verður þetta í 16. skipti sem SAF veita fyrirtæki innan samtakanna nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar, en forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson afhendir verðlaunin.
Léttar veitingar verða á boðstólum og ferskir tónlistarmenn sjá um að góð stemning svífi yfir vötnum.
Eru félagsmenn í SAF og aðrir velunnarar nýsköpunar og ferðaþjónustu hvattir til að mæta á athöfnina.
Athöfnin fer fram á Center Hotels (Lóu), Laugavegi 95-99 í Reykjavík, og hefst kl. 16.30.