fbpx

Tourbit

Um verkefnið

Er þitt fyrirtæk í stafrænni vegferð og þarf fjármagn í næstu skref?

 

Þá viljum við hvetja þig til að lesa í gegnum eftirfarandi punkta og skoða hvort þetta er tækifæri fyrir þig.

Íslenski ferðaklasinn er hluti af Evrópuverkefninu TOURBIT sem hefur það hlutverk að hraða ferðaþjónustufyrirtækjum í gegnum hið stafræna ferðalag.

Hægt verður að styðja við sjö fyrirtæki á Íslandi að andvirði 9.000 € hvert.

Þessi hluti verkefnisins er unnin með stuðningi Ferðamálastofu og landshlutasamtakanna með samstarfi við áfanastaðastofur/markaðsstofur landshlutanna víða um land.

 

Hverjir geta sótt um?

Þau fyrirtæki sem geta sótt um stuðning á sinni stafrænu vegferð eru fyrirtæki í þessum flokkum:

  • Hótel og gististaðir – Hotels and similar accommodation (NACE I5510)
  • Gistiheimli og smáhýsi – Holiday and other short-stay accommodation (NACE I5520)
  • Tjaldsvæði – Camping grounds, recreational vehicle parks and trailer parks (NACE I5530)
  • Ferðaskrifstofur, ferðasalar dagsferða og tengdur rekstur – Travel agency, tour operator reservation service and related activities (NACE N79)

Hvaða skilyrði eru fyrir því að umsóknin sé tekin til greina?

  • Fyrirtæki sé lítið eða meðalstórt fyrirtæki á evrópskum mælikvarða (starfsmenn á bilinu 1-250)
  • Velta sé undir 50m €
  • Tilgreina hvaða stafræna úrbótaverkefni fyrirtækið hyggst vinna að
  • Vera hluti af Tourbizz samfélaginu.
  • Fara í gegnum stafrænt hæfni mat / Sjálfsmat – sjá hér.

Hvað má nota stuðninginn í?   

  • Ráðagjafakostnað og sérfræðikostnað
  • Auka hæfni og þekkingu innan fyrirtækis með aðkeyptri þjónustu (námskeið, menntun, osfrv)
  • Innleiðingaferli á nýrri tækni
  • Eingöngu er hægt að nota stuðninginn hjá fyrirfram ákveðnum þjónustuaðilum, listi yfir þjónustuaðala verður aðgengilegur hér. tourbit.eu – ef þú ert þjónustuaðili getur þú skráð þig hér.

 

Mikilvægt er að kynna sér málið vel hér, hala niður umsókninni hér og senda inn umsókn fyrir 5.apríl!

Verkefnið er unnið í samstarfi við SSNV – Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra