fbpx

Hvatningaverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu veitt 13.desember



Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu fór fram í Grósku þann 13. desember sl en við sama tilefni afhenti forseti Íslands, Guðni Th Jóhannesson, hvatningaverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu.


Í rökstuðningi dómnefndar sagði m.a:

Í ár var viðfangsefni hvatningarverkefnisins Ábyrg ferðaþjónusta að tengja saman sjálfbærnistefnu, heimsmarkmiðin og ábyrga ferðaþjónustu. Í dag lítum við yfir farinn veg og horfum á það sem hefur áunnist á árinu og veitum viðurkenningu fyrir eftirtektarverðan árangur.
Margar frambærilegar tilnefningar bárust dómnefnd að þessu sinni og því var valið ekki auðvelt. Við höfum fengið sýnishorn frá fyrirtækjum sem hafa með verkum sínum sýnt fram á að sjálfbærni og ábyrg ferðaþjónusta, þ.e. með áherslu á umhverfi, réttindi starfsfólks, öryggismál og nærumhverfi stendur hjarta þeirra nærri og eru öðrum til eftirbreytni.

Hvatningarverðlaunin að þessu sinni fær Hótel Breiðdalsvík fyrir að taka á þessu stóra og mikilvæga verkefni á skipulagðan og markvissan hátt síðastliðið ár. Sjálfbærnistefna hótelsins er afar vel ígrunduð. Hringrásarhagkerfið er haft að leiðarljósi og markvisst unnið með Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna við gerð sjálfbærnistefnunnar. Hér birtist hugmyndafræði sjálfbærrar ferðaþjónustu á mannamáli sem er allt í senn auðlesin, fróðleg og innihaldsrík.

Við gerð sjálfbærnistefnunnar var horft til gilda Hótel Breiðdalsvíkur sem eru: metnaður, gleði og framúrskarandi þjónusta í sátt við umhverfið. Þessi gildi endurspeglast vel í útskýringum forsvarsmanna hótelsins á því hvernig markmiðum stefnunnar er fylgt eftir í daglegum rekstri. Því til viðbótar er mikil áhersla lögð á að hótelið er ekki bara hótel heldur virkur og ábyrgur þátttakandi í samfélaginu á Breiðdalsvík.

Við hvetjum forsvarsmenn Hótel Breiðdalsvíkur til að halda áfram að byggja ofan á þá vinnu sem hefur verið lögð í að gera ferðaþjónustu að leiðandi afli í samfélagi sem byggir á því að allir hagaðilar njóti góðs af. Í skilaboðunum frá rekstraraðilum kemur fram að það þarf ekki að finna upp hjólið; við skiptumst á hugmyndum, gögnum og þekkingu, vinnum stanslaust að því að gera betur og vinnum saman á sviði vöruþróunar. Hótel Breiðdalsvík er vel að þessum hvatningarverðlaunum komið.



Í dómnefnd fyrir Hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2022 sátu:

Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri hjá Ferðaþjónustu bænda hf. – Hey Iceland og Bændaferðir
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála
Jón Gestur Ólafsson, gæða, umhverfis og öryggisstjóri hjá Höldi ehf. – Bílaleigu Akureyrar.

Dómnefnd valdi þrjú fyrirtæki af þeim fimmtán tilnefningum sem bárust til að kynna sérstaklega sína vegferð þar sem þau þykja framúrskarandi í sinni vinnu. Hin tvö auk Hótel Breiðdalsvíkur voru Midgard Adventure og Pink Iceland.





Óskum við þeim öllum innilega til hamingju auk allra þeirra frábæru fyrirtækja sem hafa lagt af stað í sjálfbærniferðalagið með markvissum hætti og munum við á næstu dögum segja ykkur betur frá þeim.



 Viltu vera með í að efla íslenska ferðaþjónustu? 
Hafðu samband  
 

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir
Framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans
Email: asta.kristin@icelandtourism.is
S: 861-7595
  

Rakel Theodorsdóttir
Verkefnastjóri hjá Íslenska ferðaklasanum
Email: rakel@icelandtourism.is