fbpx

Tourbit í Finnlandi

Þann 6. apríl s.l. fór fram Kick-off fundur TOURBIT. Tæplega 200 gestir hittust í Rovaniemi í Finnlandi og í rafrænum heimum. Tilgangur verkefnisins er að greina og styðja við stafræna hæfni og þróun hjá litlum og meðalstórum ferðaþjónustufyrirtækjum í Evrópu. Tourbit er fjármagnað af COSME áætlun Evrópusambandsins og er til tveggja ára.

Þátttakendur í verkefninu eru alls átta frá sjö löndum sem auk Íslands eru Finnland, Frakkland, Belgía, Slóvenía, Portúgal og Spánn. Ferðamálaráð Katalóníu leiðir verkefnið.  Þátttaka Íslands er samstarfsverkefni Íslenska ferðaklasans og SSNV og var Davíð Jóhannsson ráðgjafi á svið ferðamála hjá SSNV okkar fulltrúi á kick-off fundinum.

Verkefninu er m.a. ætlað að kortleggja nýjar og framsæknar stafrænar tæknilausnir sem geta nýst ferðaþjónustunni í einu eða öðru formi og eiga rætur sínar t.d. í heimi: gagnagreiningar, skýjalausna, gervigreindar (AI), internets hlutana (IoT), bálkakeðjutækninnar, netöryggis, sýndarveruleika (VR) eða viðbætts veruleika (AI) .

Smáum og meðalstórum fyrirtækjum í ferðaþjónustu verður fljóltega gefinn kostur á að máta stöðu sína í hinum stafræna heimi við svo kallað „Digital readiness index (DRI)“ sem mætti útleggja sem stafrænt stöðumat. Í framhaldinu geta þau svo tekið þátt í vefnámskeiðum, sem er ætlað að kortleggja þá stafrænu tækniþætti, sem kann að vera ábótavant í þeirra starfsemi.

Þessu fylgja svo frekari vinnustofur, hraðlar og lausnamót þvert á samstarfslöndin þar sem ferðaþjónustu- og tæknifyrirtæki koma saman til að efla nýsköpunarhugsun. Ein vinnustofa og rýnifundur hefur verið haldin með íslenskum fyrirtækjum en það voru fulltrúar frá Eldingu, Vök Batshs og Hótel Bláfelli sem hittu fulltrúa Ferðaklasans og rýndu í stöðu og hæfni þegar kemur að innleiðingu og áskorunum við nýja tækni í ferðaþjónustu.

Í lokahluta verkefnisins árið 2023 munu svo alls 62 fyrirtæki frá löndunum sjö geta fengið fjárhagslegan stuðning við að innleiða nýja tæknilausn eða lausnir. Á Íslandi mun Ferðaklasinn standa fyrir umsóknarferli þar sem lítil og meðalstór fyrirtæki geta sótt um og af þeim verða sjö valin úr til að hljóta 9.000 evra styrk til innleiðingarinnar.