fbpx

Met umsóknarfjöldi í Startup Tourism

Þann 14. janúar n.k. hefst Startup Tourism viðskiptahraðallinn í Húsi Ferðaklasans á Fiskislóð.

Alls bárust 128 umsóknir í Startup Tourism að þessu sinni sem er 13% aukning á milli ára, en umsóknarfrestur rann út þann 3. desember s.l. Af þeim hópi voru 29 umsækjendur teknir í viðtöl og hafa tíu nú verið valdir til þátttöku. Samkvæmt fulltrúa dómnefndar einkenndu umsóknirnar í ár skapandi afþreyingarlausnir og sterkar tæknilausnir og var valið því ekki auðvelt.

Óskað var eftir eftir lausnum sem gætu fjölgað afþreyingarmöguleikum í ferðaþjónustu á Íslandi, styrkt innviði greinarinnar og stuðlað að dreifingu ferðamanna um allt land, allan ársins hring.

Í fyrsta sinn í sögu hraðalsins vinnur helmingur hópsins að tæknilausnum á sviði ferðaþjónustu á meðan hinn helmingurinn einbeitir sér að nýjum eða betri afþreyingarmöguleikum. Hópurinn á það sameiginlegt að þjónusta ferðamenn víðsvegar um landið og teygja sum fyrirtækjanna starfsemi sína út fyrir landsteinana. Í tíu vikur fá forsvarsmenn fyrirtækjanna tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila innan ferðaþjónustunnar og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.

Eftirtalin tíu fyrirtæki taka þátt í Startup Tourism árið 2018:

BusTravel IT
Hugbúnaðarlausn sem eykur ánægju viðskiptavina og skilvirkni í rekstri

Film Iceland

Stafrænn ferðavísir sem gægist bakvið tjöldin á kvikmyndatökustöðum landsins

GeoGardens
Samræktargróðurhús og veitingastaður á Hellisheiði

HandPicked Iceland
Leiðarvísir með ekta íslenskum upplifunum sem stuðla að grænni ferðamennsku

Iceland Bike Farm
Fjallahjólreiðar og einstök upplifun hjá hjólabændunum í Mörtungu

Iceland Outfitters
Faglegar og vinalegar veiðiferðir

Iceland Sports Travel
Sérhæfð íþróttaferðaskrifstofa með áherslu á ferðir íþróttahópa til Íslands

Selfie Station
Myndaupplifun við helstu kennileiti Íslands

Venture North
Ferðaþjónusta á Norðurlandi sem býður upp á ævintýraferðir á róðrabrettum

Wapp-Walking app
Leiðsagnarapp með fjölbreyttum leiðarlýsingum um allt land