Þann 6. desember næstkomandi verður haldin málstofa á vegum Klasaseturs Íslands í samstarfi við Háskólann á Akureyri, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskólann á Bifröst og Háskóla Íslands.
Ætlunin er að ræða um árangur af klasastefnu í nágrannalöndum okkar og afhverju Ísland ætti að taka upp slíka stefnu. Einnig verður rætt um hvaða ávinningur skilar þátttaka í klasastarfi.
Dagskrá
13:00: Setning
13:10: Klasastefna og árangur – Merete Daniel Nielsen, forseti TCI heimssamtaka klasa
13:30: Árangur Sjávarklasans – Berta Daníelsdóttir, Sjávarklasinn
13:40: Árangur Álklasans – Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir, Álkasinn
13:50: Árangur Orkuklasans – Viðar Helgason, Orkuklasinn
14:00: Árangur Ferðaklasans – Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Ferðaklasinn
14:10: Klasarit 2018 og slit – Hannes Ottósson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Málstofan verður haldin í Þjóðminjasafni Íslands
Hægt er að skrá sig á vef Nýsköpunarmiðstöðvar:
https://www.nmi.is/is/nyskopun_og_samstarf/samstarf-og-samfelag/samstarf_klasar/klasastefna-og-arangur-klasa